150 ný störf hjá sex frumkvöðlasetrum

Sveinbjörn Höskuldsson framkvæmdastjóri Nox Medical
Sveinbjörn Höskuldsson framkvæmdastjóri Nox Medical

Um 200 manns eru nú með aðstöðu á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands en áttunda frumkvöðlasetur miðstöðvarinnar var opnað með formlegum hætti í dag. Sex ný frumkvöðlasetur hafa verið opnuð eftir hrunið og hafa um 150 störf myndast innan þeirra.

Í fréttatilkynningu kemur fram að nýjasta frumkvöðlasetrið, Kím – Medical Park, er ætlað fyrirtækjum í heilbrigðistækni og skyldum greinum og hafa tólf hátæknisprotafyrirtæki fengið aðstöðu þar.

Við opnun Kíms í dag kom fram að innan heilbrigðistækninnar felast mikil tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, enda markaður fyrir lækningatæki og heilsuvörur gríðarstór á heimsvísu.

Nox Medical, eitt fyrirtækjanna á setrinu, kynnti starfsemina á opnuninni en það hefur á síðastliðnum þremur árum þróað og sett á markað svefngreiningartæki fyrir börn jafnt sem fullorðna.  Búnaðurinn er nú þegar kominn á markað í Evrópu og Bandaríkjunum í gegnum lækningavörudreifingarfyrirtækið CareFusion. 

Frá því að búnaðurinn fór í sölu í mars hefur hann selst umfram áætlanir fyrirtækisins og er nú gert ráð fyrir því að velta fyrirtækisins af þessum vörum verði yfir 120 milljónir íslenskra króna á þessu fyrsta söluári, að sögn Sveinbjarnar Höskuldssonar framkvæmdastjóra, í fréttatilkynningu.

Á meðal annarra fyrirtækja á setrinu eru SagaMedica, sem framleiðir heilsuvörur úr íslenskum lækningajurtum, Medical Algorithms sem vinnur að hugbúnaðargerð fyrir lækningatæki, Valamed sem er að þróa lyfjanæmispróf fyrir hnitmiðaðri lyfjameðferð og Líf-Hlaup sem vinnur að þróun lyfjasamsetningar til notkunar á slímhúðir. Fyrirtækin tólf eru nú með 35 starfsmenn en enn er laus aðstaða á setrinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert