Alcoa prófar nýja tækni til að virkja sólarorku

Sólarspegill Alcoa í tæknimiðstöð fyrirtækisins í Pittsburgh.
Sólarspegill Alcoa í tæknimiðstöð fyrirtækisins í Pittsburgh.

Bandaríska álfyrirtækið Alcoa, sem á og rekur Alcoa Fjarðaál, og rannsóknamiðstöð orkumálaráðuneytis Bandaríkjanna um endurnýjanlega orkugjafa vinna nú að prófunum á nýrri tækni til að virkja sólarorku.

Markmiðið er að lækka kostnað við gerð og rekstursólarspegla til raforkuframleiðslu  og gera þá samkeppnishæfa við aðrar leiðir til orkuframleiðslu, að því er segir í fréttatilkynningu frá Alcoa Fjarðaál.

„Ný gerð sólarspegla, sem þróaðir voru af vísindamönnum við tæknimiðstöð Alcoa í Pittsburgh í Bandaríkjunum, voru nýlega settir upp til prófunar í Colorado í Bandaríkjunum, á prófunarsvæði rannsóknamiðstöðvar um endurnýjanlega orkugjafa. Ætlunin er að prófa getu þeirra til að framleiða orku og meta hvernig hönnun þeirra reynist í samanburði við eldri tækni.

Þeir sólarspeglar sem nú eru á markaði nota flestir glerspegla til að safna sólarorku og breyta henni í hitaorku. Hitinn er síðan nýttur til að framleiða rafmagn með hefðbundinni túrbínu. Einn af kostum sólarspegla umfram sólarsellur, er að hægt er að geyma sólarorkuna sem þeir beisla sem varma og nýta hann til rafmagnsframleiðslu þegar þörf er á.

Háglans-ál er notað í stað glers í sólarspeglunum sem Alcoa hefur þróað. Þeir eru um það bil 12X6 metrar á stærð. Álið er bæði endingarbetra og umhverfisvænna en brothætt gler. Hönnun Alcoa á sólarspeglunum byggir á þróun fyrirtækisins á íhlutum fyrir flugvéla- og bílaiðnaðinn og tók mið af því að búnaðurinn hentaði til fjöldaframleiðslu.

Verkefnið er fjármagnað að hluta með 3,1 milljóna dala styrk frá orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna. Búist er við fyrstu niðurstöðum prófananna um mitt þetta ár og að því loknu taka við frekari rannsóknir" segir í tilkynningu frá Alcoa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert