Vísindamenn hafa fundið áður óþekkta frummannategund með DNA rannsóknum á fingurbeini, sem fannst í helli í Síberíu árið 2008. Um er að ræða tegund, sem átti sömu forfeður og nútímamaðurinn og virðist hafa verið uppi í Mið-Asíu fyrir um 30-48 þúsund árum.
Fjallað er um rannsóknir á beininu í tímaritinu Nature. Að sögn fréttavefjar BBC benda DNA-rannsóknirnar til þess, að þessi tegund sé frábrugðin bæði Neanderdalsmanninum og nútímamanninum. Beinið er að konu, sem nefnd er X-konan, og ásamt því fundust leifar af skartgripum, þar á meðal armbandi.
BBC segir að þessi niðurstaða leiði líkum að því að þrjár tegundir manna, Neanderdalsmaðurinn, nútímamaðurinn (homo sapiens) og tegundin sem X-konan er fulltrúi fyrir, hafi hist og átt samskipti í suðurhluta Síberíu.
Svo virðist sem X-konan hafi byrjað að þróast í aðra átt en homo sapiens fyrir um milljón árum. Leiðir skildu hins vegar á milli Neanderdalsmanna og homo sapiens fyrir um 500 þúsund árum.