Ný meðhöndlun krabbameins vekur vonir

Már Másson prófessor við Lyfjafræðideild HÍ, og Vivek S. Gaware, …
Már Másson prófessor við Lyfjafræðideild HÍ, og Vivek S. Gaware, doktorsnemi við deildina, við rannsóknir í Haga í dag.

Rannsókn á nýrri meðhöndlun krabbameins, sem doktorsnemi við Háskóla Íslands vinnur að frekari þróun á samstarfi við erlenda aðila, hefur vakið athygli í Bretlandi. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa góð fyrirheit um að unnt sé að vinna bug á ýmsum krabbameinum á höfði og hálsi sem áður voru talin ill- eða ólæknanleg.

Samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands er rannsóknin á vegum norsks fyrirtækis, PCI Biotech og er unnin af læknum við University College Hospital í London. Rannsóknin snýst um að beita nýrri tækni til krabbameinsmeðferðar.

Ellefu sjúklingar með langt komin krabbamein tóku þátt í rannsókninni. Nýju rannsóknalyfi, Amphinex, var sprautað í æð nokkrum dögum áður en sjúklingurinn hlaut hefðbundna lyfjameðferð. Amphinex örvar ljósstýrða upptöku lyfja í krabbameinsfrumur. Í kjölfar lyfjameðferðarinnar var ljósi beint að krabbameinsæxlinu, og við það jókst til muna virkni lyfjameðferðarinnar. Meðhöndluð æxli hurfu og engar alvarlegar aukaverkanir komu fram í rannsókninni.

Einn níu starfsmanna PCI Bioteche er Vivek S. Gaware, doktorsnemi við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, en leiðbeinandi í verkefni hans er Már Másson prófessor. Rannsóknaverkefni Viveks miðar að frekari þróun á þessari nýstárlegu meðferð. Norska fyrirtækið á í samvinnu við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og er með starfsstöð hér á landi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert