Tveir bandarískir vísindamenn áætla að rekja megi dauða 16 þúsund Bandaríkjamann á árunum 2001 til 2007 til þess, þeir voru að senda SMS eða fást við farsíma sína á meðan þeir óku bílum.
Þeir Fernando Wilson og Jim Stimpson hjá Texasháskóla birta gein um rannsóknina í American Journal of Public Healthsignerte. Þeir skoðuðu skýrslur um umferðarslys sem orðið höfðu á þjóðvegum í Bandaríkjunum á árunum 1999 til 2008.
Niðurstaðan er að umferðarslysum, sem rekja má til þess að ökumaður var ekki með hugann við aksturinn, fjölgaði um 28% eftir árið 2005. Slysum, þar sem ungir karlmenn áttu í hlut, fjölgaði greinilega.
Segja skýrsluhöfundar, að niðurstöðurnar bendi til þess að stórauknar SMS-sendingar hafi leitt til þúsunda banaslysa í umferðinni. Leggja þeir til þess að bannað verði með lögum að nota farsíma til að senda smáskilaboð undir stýri og jafnframt verði eftirlit lögreglu aukið.