Hrunið á Wall Street þann 6. maí sl., þegar Dow Jones vísitalan lækkaði um rúm 700 stig á nokkrum mínútum er rakið til viðskipta upp á 4,1 milljarð dala. Um villu var að ræða í tölvukerfi viðkomandi miðlara sem setti inn sölutilboð á 75 þúsund hlutabréfum á tuttugu mínútum. Um var að ræða reikniskekkju í algrími tölvukerfis fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá eftirlitsaðilum með verðbréfaviðskiptum í Bandaríkjunum, Securities and Exchange Commission (SEC) og Commodity Futures Trading Commission (CFTC).
Þar sem viðskipti voru grunn þennan dag og mikil taugaveiklun á markaði líkt og undanfarin tvö ár þá fór allt af stað þegar sölutilboðunum rigndi inn í miðlarakerfið.
Á nokkrum mínútum lækkaði Dow Jones vísitalan um tæp 10% en lækkunin gekk til baka nánast strax þegar ljóst var að hrun var ekki í aðsigi heldur einungis vandi í tölvukerfi.
Skýring Vísindavefjarins á algrími