Nýr aukapakki fyrir flugherminn Microsoft Flight Simulator sem ber nafnið Iceland X verður gefinn út á næstu dögum af þýska fyrirtækinu Aeorosoft.
Aukapakkinn Iceland X inniheldur fjölmarga flugvelli á Íslandi ásamt fullkomnum teikningum af íslenskum bæjum og höfnum sem og stórbrotnu landslagi. Hægt er að fylgjast með gangi mála á heimasíðu Aerosoft.
Á vefnum YouTube er myndskeið, sem sýnir flugferð í F-18 herþotu á ógnar hraða yfir Íslandi.