Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn á Spáni, Alþýðufylkingin (PP), sem er miðju-hægriflokkur, hefur valdið uppnámi með tölvuleik á vefsíðu flokksins. Í leiknum geta þátttakendur m.a. sprengt flugvélar með ólöglegum innflytjendum.
Leikurinn var fjarlægður af síðunni eftir fáeinar klukkustundir og sögðu fulltrúar PP að höfundur leiksins hefði ekki farið fyllilega að fyrirmælum um gerð hans. Ætlunin hefði verið að gefa færi á að sprengja glæpagengi sem taka að sér að flytja ólöglega innflytjendur til Spánar. En andstæðingar flokksins segja að með leiknum hafi PP sýnt sitt rétta andlit: hneigð til útlendingahaturs.
Í leiknum er formaður flokksdeildarinnar í Katalóníu, Alicia Sanchez-Camacho, sýndur ríðandi á hvítum máfi er nefnist Pepe. Hún er kölluð Alicia Croft og ljóst að þannig er minnt á hetjuna Lara Croft í þekktum tölvuleik, Tomb Raider. Þátttakendur fá stig ef þeim tekst að láta máfinn sprengja flugvél með ólöglegum innflytjendum eða táknmyndir sem katalónskir þjóðernissinnar nota en þeir vilja, andstætt PP, fullt sjálfstæði Katalóníu.
Mörg þúsund manns skráðu sig í leikinn þegar hann var kynntur á þriðjudaginn og vefsíðan hrundi, að sögn dagblaðsins El Pais.