Alþjóða Rauði krossinn telur að hægt sé að draga verulega úr útbreiðslu alnæmis ef sprautufíklar væru meðhöndlaðir sem sjúklingar frekar en afbrotamenn.
Á Íslandi greindust 20 manns með alnæmi á þessu ári, sem er mesti fjöldi nýgreindra á einu ári frá upphafi mælinga. Líkt og annars staðar í Evrópu er aukningin mest meðal sprautufíkla, segir í tilkynningu frá Rauða krossinum.
„Í skýrslu sem gefin er út af tilefni alþjóðlega alnæmisdagsins 1. desember kemur fram að meðan dregið hefur úr nýmsitun alnæmis í Afríku hefur hún aukist mikið meðal sprautufíkla um allan heim.
Í skýrslunni er sagt að stjórnvöld hafi brugðist þessum hópi með því að dæma fólk í fangelsi í stað þess að veita sprautufíklum betri aðgang að heilbrigðiskerfinu og aðstöðu til að fá hreinar nálar og sprautur til að koma í veg fyrir smit og sýkingar.
Rauði krossinn lítur á hina miklu aukningu alnæmissmits meðal sprautufíkla sem almennt heilbrigðisvandamál,og sýni þá vanrækslu og mismunun sem þessi hópur þarf að kljást við á hverjum einasta degi. Verði ekkert að gert, stendur almenningi jafnt sem sprautufíklum ógn af afleiðingunum því smit getur hæglega borist út fyrir hópinn.
Rauði krossinn bendir á að í löndum þar sem unnið hefur verið markvisst að því að draga úr sjúkdómum og smiti meðal sprautufíkla með því að veita þeim aðgang að heilbrigðisþjónustu, hreinum nálum og sprautum hafi tekist að stemma stigum við því að alnæmissmit meðal þessa hóps aukist og berist til almennings. Rauði krossinn hvetur stjórnvöld til að styðja slík verkefni og veita nægu fé í málaflokkinn.
Talið er að um 16 milljónir sprautufíklar séu í heiminum í dag, og að um 3 milljónir þeirra séu smitaðir af alnæmi. Flestir þeirra eru í Austur Evrópu og Asíu, en mikil aukning hefur verið á alnæmissmiti meðal sprautufíkla í flestum löndum heims."