Bandaríska geimferðastofnunin NASA segir, að nú sé það formlega staðfest að sólin er hnöttótt en í fyrsta skipti hafa nú verið birtar þrívíddarmyndir af sólinni.
Myndirnar voru teknar með tveimur rannsóknarförum, sem sveima úti í geimnum.
Vísindamenn NASA segja, að nýju myndirnar marki mikilvægt skref í þróun svonefndrar geimveðurspár sem hafi mikla þýðingu fyrir flugfélög, orkufyrirtæki og stjórnendur gervitungla.