Eftir að hafa verið einangraðir frá umheiminum í átta mánuði gengu Rússi og Ítali út á eftirlíkingu af yfirborði plánetunnar Mars í gær. „Geimgangan“ er hluti af 520 daga tilraun sem ætlað er að leiða í ljós hvernig geimfarar ráða við álagið sem fylgir ferðalagi til Mars.
Sex manns frá Rússlandi, Evrópu og Kína, taka þátt í tilrauninni sem gerð er í rannsóknarstöð í Moskvu. Markmið Rússa, í samstarfi við Evrópsku geimferðastofnunina, er að fara í raunverulega mannaða ferð til Mars fyrir árið 2040.
Í rannsóknarstöðinni er reynt að líkja sem best eftir geimferð og geimgöngu. Umsjónarmenn tilraunarinnar fylgdust með sjónvarpssendingu frá geimgöngunni frá stjórnstöð, líkt og um raunverulega geimgöngu væri að ræða.
Geimfararnir settu niður fána Rússlands, Evrópsku geimferðastofnunarinnar og Kína og tóku að því búnu jarðvegssýni. Þeir gengu um í geimbúningum og báru þyngda bakpoka, sem hefðu innihaldið súrefni úti í geimnum.
Áætlað hafði verið að geimgangan stæði í 93 mínútur, en henni var hætt eftir 43 mínútur, að því er fréttastofa Interfax greinir frá. Engar skýringar voru gefnar á því.