Áhöfn geimskutlunnar Endeavour er komin eftir til Kennedy-geimmiðstöðvarinnar í Flórída til að búa sig undir lokaferð hennar á mánudag. Átti hún upprunalega að leggja upp þann 29. apríl en skotinu var frestað vegna bilunar sem fannst fjórum klukkustundum fyrir brottför.