Enn er ekki vitað hvar brot úr gervihnetti, sem er á leið inn í lofthjúp jarðar, koma til með að lenda. Bandaríska geimferðastofnunin sagði í dag að gervihnötturinn hefði hægt á sér og ekki væri hægt að útiloka að brot úr honum mundu lenda í Bandaríkjunum.
Búist er við að UARS-rannsóknargervitunglið komi inn í gufuhvolfið í nótt eða fyrramálið. Meðfylgjandi mynd var tekin í síðustu viku en þá náði franskur frístundastjarnfræðingur myndum af hnettinum.
Hnötturinn er 6,5 tonn að þyngd. Áætlað er að stærstur hluti hnattarins brenni upp þegar hann kemur inn í lofthjúpinn. Samt gætu um 26 brot lent á jörðinni. NASA segir að afar litlar líkur séu á að brotin lendi á fólki.
Netverjar hafa velt því mikið fyrir sér hvar hnötturinn kunni að lenda. Ítölsk stjórnvöld gripu til þeirra óvenjulegu ráðstafana í dag að hvetja íbúa á Norður-Ítalíu til að halda sig innandyra í nótt en um 1,5% líkur voru þá taldar á því að brot úr gervitunglinu myndu lenda þar.
Nú er talið líklegt að hnötturinn komi inn í gufuhvolfið á tímabilinu frá 2:30 í nótt til 8:30 í fyrramálið. Þau brot, sem kunna að lenda á jörðinni, eru talin vega frá 1 kílói til 158 kílóa og þau gætu dreifst yfir um 800 km langt svæði.