Köttur með tvö andlit

Kötturinn með tvö andlit.
Kötturinn með tvö andlit. Reuters

Frank og Louie er óvenjulegur köttur því hann er með tvö andlit. Hann náði nýlega 12 ára aldri, en eftir því sem best er vitað hefur enginn köttur með þennan galla náð jafn háum aldri.

Frank og Louie er frá Massachusetts í Bandaríkjunum. Hann hefur tvo munna, tvö nef og þrjú augu. Augað í miðjunni er blint. Þegar kötturinn borðar borðar hann alltaf með munni Franks.

Segja má að þessi köttur hafi níu líf því óvenjulegt er að köttur sem fæðist svona gerður lifi. Frank og Luie hefur hins vegar lifað góð lífi í tólf ár.

Eigandi hans segir að líkist hundi í háttum. Hann fari stundum út að ganga með hann í bandi og kettinum þyki mjög gaman að vera í bíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert