Dan Burbank, flugstjóri í alþjóðlegu geimstöðinni, náði myndum af halastjörnunni Lovejoy er hún þaut framhjá.
„Þetta er ótrúlegasta sjón sem ég hef séð í geimnum. Og ég hef séð ýmislegt ótrúlegt," sagði Burbank.
Geimstöðin var yfir áströlsku eyjunni Tasmaníu þegar Burbank sá halastjörnuna. Það var við hæfi því hún heitir eftir ástralska stjarnfræðingnum Terry Lovejoy, sem sá hana fyrstur í nóvember.