Snjallsímar eru kuldaskræfur

Snjallsímar þola illa frost samkvæmt tilraun sem finnskt tæknitímarit gerði.
Snjallsímar þola illa frost samkvæmt tilraun sem finnskt tæknitímarit gerði. mbl.is/Reuters

Snjallsím­ar þola illa frost og fimb­ul­kulda. Veru­lega hæg­ir á virkni þeirra þegar frost fer niður í fimm gráður og sum­ir þeirra hætta að virka við tíu gráðu frost. Eldri gerðir farsíma þola kuld­ann bet­ur. Þetta kom fram í til­raun finnsks tækni­tíma­rits.

Finnska tækni­tíma­ritið  MikroPC gerði til­raun á því hversu vel snjallsím­ar þoldu frost. Í ljós kom að þeir þola frost afar illa, við fimm gráðu frost átti i-Pho­ne sím­inn með að lesa sim-kortið og við tíu gráðu frost til­kynnti sím­inn að raf­hlaða hans væri að tæm­ast og slökkti síðan á sér stuttu síðar.

Eig­end­ur i-Pho­ne hafa einnig kvartað und­an því að glerið í skján­um springi, þegar hita­stigið fer niður fyr­ir frost­mark.

Apple tek­ur enga ábyrgð á þessu, því að í ábyrgðar­skír­teini sím­anna stend­ur að sím­inn sé ein­ung­is not­hæf­ur við 0-35 gráða hita­stig.

En þetta á ekki ein­ung­is við um síma frá Apple. Raf­hlaðan í Nokia N9s er fljót að eyðast og raf­hlaða HTC-síma eyðist við 15 gráða frost. Rann­sókn­in sýndi enn­frem­ur að eldri gerðir farsíma, þ.e. sím­ar sem ekki eru snjallsím­ar, þoldu frost yf­ir­leitt bet­ur og virkuðu yf­ir­leitt vel í hita­stigi niður að -25°C.

Ástæða þessa er fyrst og fremst raf­hlöðurn­ar í sím­un­um.

Frétt Berl­ingske

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert