Úrslit eru nú hafin í Gullegginu, frumkvöðlakeppni Innovit 2012, í Háskólanum í Reykjavík. Innovit stendur árlega fyrir keppninni, en hún er haldin að fyrirmynd MIT-háskóla í Bandaríkjunum og VentureCup á Norðurlöndunum.
Meginmarkmið keppninnar er að skapa vettvang fyrir ungt athafnafólk til að öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja.
Tíu efstu liðin í keppninni halda kynningu í dag fyrir dómnefnd sem ákveður hver verður handhafi Gullleggsins, ásamt því að útdeila verðlaunum sem eru að andvirði hátt í fimm milljónir króna.
Keppnin í ár er sú fjölmennasta frá upphafi, en 466 þátttakendur stóðu á bak við þær 224 hugmyndir sem bárust í keppnina í ár, sem hefur staðið yfir í rúma tvo mánuði.
Að loknum úrslitum afhendir menntamálaráðherra aðalverðlaun keppninnar klukkan 16:00, en lokahófið fer fram milli 15 og 17. Þá mun Viggó Ásgeirsson, einn af stofnendum Meniga, segja frá reynslu sinni sem þátttakandi í Gullegginu og fulltrúar efstu tíu viðskiptahugmyndanna kynna þær á 60 sekúndum.