Sumir jöklar í Asíu að stækka

Snjóflóð eru algeng í fjöllum á Karakoram-fjallgarðinum.
Snjóflóð eru algeng í fjöllum á Karakoram-fjallgarðinum. Reuters

Sum­ir jökl­ar í Kara­koram-fjall­g­arðinum í Asíu eru að stækka en ekki minnka. Þetta er niðurstaða franskra vís­inda­manna sem rann­sakað hafa jökl­ana.

Kara­koram-fjall­g­arður­inn er vest­ur af Himalaya-fjallag­arðinum. Rann­sókn­ir sýna að jökl­ar í Himalaya eru að minnka og raun­ar benda rann­sókn­ir til að þeir kunni að vera horfn­ir að mestu árið 2035.

Mæl­ing­ar frönsku vís­inda­mann­anna benda til þess að jökl­ar í Kara­koram séu að þykkna. Þeir segj­ast ekki treysta sér til að benda á trú­verðuga skýr­ingu á þessu.

Litl­ar rann­sókn­ir hafa verið gerðir á jökl­um á þessu svæði, en jökl­arn­ir eru vatns­forðabúr fyr­ir yfir einn millj­arð manna. Mjög erfitt er að kom­ast að hluta þessa svæðis til að gera rann­sókn­ir. Í frétt á BBC seg­ir að samstaða sé um að auka þurfi rann­sókn­ir á svæðinu.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert