Nýleg rannskókn hefur leitt í ljós að svartbirnir geta mögulega talið. Í grein sem birtist á heimasíðu National Geographic segir Jennifer Vonk að birnir, og önnur dýr sem hafa ekki verið rannsökuð nægilega, hafi mörg hver eiginleika sem minni um margt á mannskepnuna.
Birnir hafa stærstan heila allra rándýra, fyrir utan prímata, en hafa af einhverjum óskiljanlegum ástæðum aldrei verið rannsakaðir til hlítar fyrr en nú. Í ljós hefur komið að svartbirnir geta til að mynda leyst úr allskonar talna-, punkta- og myndþrautum sem áður var talið að væri ekki innan þeirra hæfileikasviðs.
Tilraunir voru gerðar með þrjá svartbirni í dýragarði í Alabama í Bandaríkjunum þar sem matur var notaður til að hvetja dýrin áfram til verkanna. Þannig fengu birnirnir til að mynda mat ef þeir snertu réttan tölvuskjá, en á þeim voru til dæmis myndir af mismörgum punktum.