Fræðimaður segir að pappírssnifsið sem átti að sanna að Jesús hefði átt eiginkonu sé falsað.
Fræðimaður við Harvard-háskóla taldi sig hafa fundið sönnun þess að Jesús hefði verið kvæntur á pappírssnifsi sem talið var vera frá 4. öld. Vakti fréttin gríðarlega athygli um allan heim. Nú hefur fræðimaður við Durham-háskóla sagt skjalið falsað. Um sé að ræða eftirprentun af Tómasar-guðspjalli og að orðum hafi augljóslega verið breytt á pappírnum.
Francis Watson, prófessor við Durham-háskóla telur sig hafa sannað að um fölsun sé að ræða. „Ég held að það sé nú óumdeilt að ég hafi sýnt fram á að hvernig þetta var gert,“ segir Watson í grein í Guardian. „Ég yrði mjög undrandi ef þetta er ekki nútíma fölsun en það er þó ekki útilokað að þetta hafi verið gert á 4. öld.“
Niðurstaða Watsons er sú að sá sem skrifaði eða endurskrifaði á pappírinn hafi ekki haft egypsku að móðurmáli en orðin eru skrifuð með fornegypskum táknum. Hann gagnrýnir ekki kollega sinn í Harvard, sem gerði fyrri rannsóknina, beinlínis. Hann telur að pappírinn geti vel verið frá 4. öld, en orðin, segir hann, bera með sér að vera mun yngri.