Ljósmyndara Bæjarins besta á Ísafirði brá heldur betur í brún þegar hann fór yfir ljósmyndir sem hann tók í Arnardal í Skutulsfirði í gærkvöldi. Ægifögur norðurljós léku um himinhvolfið en á einni myndinni má greina fyrirbæri sem vakið hefur athygli.
Ljósmyndarinn tók á annan tug mynda og er umrætt fyrirbæri, þríhyrningslaga ljósgeisli, aðeins á einni mynd sem tekin var á 30 sekúndum, að því er fram kemur á vef Bæjarins besta.