Nýjasta tækni frá Samsung

Samsung kynnti ný og hátæknivædd sjónvarpstæki á CES-tækjasýningunni í Las Vegas sem hófst í gærkvöld. Tækin koma á markað hér á landi í apríl og verða þá kynnt í Samsung-setrinu í Síðumúla.

Meðal þess sem var kynnt var 55 tommu OLED TV F9500-sjónvarpstæki sem er það fyrsta sinnar tegundar í heiminum, en tækið búið hinni nýju Multi-View-tækni frá Samsung sem þýðir að tveir geta horft á mismunandi sjónvarpsefni á sama skjánum með því að nota hvor sín stjórntækin og þrívíddargleraugu sem fylgja tækinu.

3D-gleraugun eru með innbyggðum hátölurum sem tryggja viðkomandi fullkomið hljóð auk myndar frá því sjónvarpsefni sem horft er á. 

Einnig var kynnt 85 tommu Samsung S9 Ultra HD sem er stærsta sjónvarpstæki fyrir heimili sem völ er á. Tækið er með 4K upplausn sem er næstum helmingi meiri upplausn en í nýjustu tækjum á markaði í dag.

Frá kynningunni í Las Vegas í gærkvöldi þegar OLED tækið …
Frá kynningunni í Las Vegas í gærkvöldi þegar OLED tækið var kynnt.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert