Rakel valin nörd ársins

Rakel Sölvadóttir
Rakel Sölvadóttir

Advania efndi í síðustu viku til samkeppni meðal 10 þúsund viðskiptavina og samstarfsaðila fyrirtækisins og leitaði að nörd ársins – þeirri manneskju sem hefur skarað fram úr í íslenskri upplýsingatækni undanfarið ár.

Liðlega 300 manns hlutu tilnefningar og þar af fengu 18 manns fleiri en tíu atkvæði. Óháð dómnefnd sérfræðinga í faginu fór síðan yfir tilnefningar og valdi nörd ársins með hliðsjón af þeim, segir í fréttatilkynningu.

„Að þessu sinni var Rakel Sölvadóttir hjá Skema fyrir valinu. Hún hlaut að launum veglegan bikar og flugmiða fyrir tvo til útlanda með WOW air. „Rakel er stofnandi Skema og brautryðjandi í kennslu í forritun og hugbúnaðarþróun fyrir börn og unglinga. Hún hefur einnig þróað framsækinn kennsluhugbúnað sem hún herjar nú með á erlendan markað. Rakel elur núna upp næstu kynslóðir nörda og sameinar það að vera frumkvöðull, fræðikona, jákvæð og uppörvandi manneskja og sannur leiðtogi á sínu sviði,“ segir meðal annars í umsögn dómnefndar.“

Þetta er þriðja árið í röð, sem Advania stendur fyrir valinu á nörd ársins, en árið 2012 urðu hlutskarpastir þeir Gunnar Grímsson og Róbert Bjarnason frumkvöðlar í lýðræðislausnum hjá ibuar.net og 2011 varð Hjálmar Snær Gíslason stofnandi DataMarket fyrir valinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert