Villa í hugbúnaði hjá Facebook varð þess valdandi að netnotendur komust um tíma ekki inn á neinar vefsíður sem tengjast samskiptavefnum í gegnum Facebook Connect. Þetta gerðist rétt fyrir klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma og hafði áhrif á notendur um allan heim.
Vegna villunar var ekki hægt að heimsækja vefsíður á borð við CNN, Washington Post og mbl.is, svo dæmi séu tekin. Þess í stað voru notendur áframsendir á Facebook-síðu þar sem villuskilaboð birtust, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Með Facebook Connect geta utanaðkomandi vefsíður, m.a. fréttasíður, tengst samskiptavefnum þannig að fólk getur t.d. „líkað“ eitthvað, skrifað ummæli eða skráð sig inn í gegnum eigin Facebook-aðgang.
Vandamálið sneri aðeins að þeim tölvunotendum sem voru búnir að skrá sig inn á Facebook og reyndu að heimsækja aðrar vefsíður sem nýta sér Facebook Connect, en það gera fjölmargir vefmiðlar.
Forsvarsmenn Facebook sendu frá sér yfirlýsingu vegna málsins og þar segir að bilunin hafi varað í skamman tíma og að þessu hafi fljótlega verið kippt í liðinn.
Facebook tók hins vegar ekki fram í hve langan tíma þetta stóð yfir. Víða á netinu er fjallað um vandann, m.a. á mörgum tæknisíðum. Sumir halda því fram að bilunin hafi varað í um 15 mínútur en aðrir segja að það hafi tekið tæpa klukkustund að komast fyrir vandann.