Forvitni (e. Curiosity), könnunarjeppi bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, sem staddur er við rannsóknir á Mars, hefur nú verið kyrrsettur vegna bilunar í tölvubúnaði. Vísindamenn NASA leita nú leiða til að gera við geimjeppann frá jörðu.
Búist er við því að viðgerðin gangi hratt fyrir sig og að Forvitni verði kominn í fulla notkun innan örfárra daga.
Marsjeppanum var skotið á loft 26. nóvember árið 2011, hann lenti á Mars í ágúst í fyrra og er honum ætlað að rannsaka hvort aðstæður á Mars voru einhvern tímann, eða eru jafnvel í dag, heppilegar fyrir örverulíf. Að auki leitar hann vatns.
Þessi leiðangur NASA kostar um 2,5 milljarða Bandaríkjadollara. Í undirbúningi er að senda mannað geimfar til Mars.