Höggbylgja sem varð í kjölfar þess að lofsteinn sprakk yfir Rússlandi í febrúar fór tvisvar sinnum umhverfis jörðina, að sögn vísindamanna.
Yfir þúsund manns særðust er um 10 þúsund tonna steinninn, stærri en tveggja hæða strætisvagn, brann upp í andrúmsloftinu fyrir ofan Síberíu.
Skjálfti af völdum sprengingarinnar kom fram á mælum 20 mæla víðs vegar um heiminn. Mælarnir hafa það hlutverk að fylgjast með tilraunum með kjarnorkuvopn.
Í grein vísindamannanna sem birt er í tímaritinu Geophysical Research Letters, kemur fram að þetta sé í fyrsta sinn sem stöðvarnar mæla höggbylgju utan úr geimnum sem fór tvisvar umhverfis alla jörðina.
Sjá nánar frétt Sky fréttastofunnar.