Milljónir fylgdust með almyrkva á sólu í Indónesíu og á Kyrrahafi snemma í morgun að staðartíma, klukkan 6:19, sem er klukkan 23:19 að íslenskum tíma. Þar á meðal voru nokkrir íslenskir áhugamenn um stjörnuskoðun.
Sævar Helgi Bragason og tveir félagar hans úr Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness, Hermann Hafsteinsson og Gísli Már Árnason, ferðuðust yfir hálfan hnöttinn til að verða vitni að sjónarspilinu.
mbl.is: Elta almyrkva yfir hálfan hnöttinn
Stjörnuskoðunarfélagið gat sér gott orð þegar það gaf öllum grunnskólabörnum á landinu gleraugu til að fylgjast með deildarmyrkvanum sem varð hér á landi í mars í fyrra.
Sólmyrkvinn var algjör í Indónesíu og á miðju Kyrrahafi en hluti af Ástralíu og annars staðar í Asíu upplifðu íbúar sólmyrkva að hluta.
Sólmyrkvi verður þegar tunglið fer á milli sólar og jarðar þannig að það varpar skugga á jörðina og sólin myrkvast að hluta eða í heild frá jörðu séð. Frá jörðu séð eru tunglið og sólin álíka stór, þótt sólin sé um 400 sinnum stærri en tunglið. Ástæðan er sú að sólin er um 400 sinnum lengra frá jörðu en tunglið.
Hylji tunglið alla sólina er talað um almyrkva, en deildarmyrkva þegar skífa sólarinnar hylst að hluta. Við hringmyrkva fer tunglið fyrir sólina, en er það langt frá jörðu að það nær ekki að myrkva alla skífu sólar. Sólmyrkvar verða einungis þegar jörðin, tunglið og sólin eru í beinni línu. Þeir geta því aðeins orðið þegar tungl er nýtt.