Fjögur ný frumefni fengu formlega nafn og sæti í lotukerfinu í dag. Venja er að nefna frumefni eftir stöðum, landsvæði eða vísindamanni. Frumefnin fjögur eru nefnd eftir Japan, Moskvu, Tennessee og rússneska vísindamanninum Júrí Oganessian.
Alþjóðasamband efnafræðinga (IUPAC) staðfesti uppgötvun frumefnanna fjögurra í fyrra en þau voru öll framleidd á tilraunastofum. Heiðurinn að fá að nefna þau féll í skaut vísindamannanna sem uppgötvuðu þau.
Frétt Mbl.is: Bætist við lotukerfið
Japönsku vísindamennirnir sem uppgötvuðu frumefnið með sætistöluna 113 nefndu efnið eftir heimalandi sínu á japönsku. Þannig fékk það nafnið nihoníum (Nh). Efnið er afar geislavirkt og með skamman helmingunartíma.
Hópur bandarískra og rússneskra vísindamanna sem uppgötvuðu frumefni 115 og 117 komu sér saman um að nefna efnin eftir Moskvu, höfuðborg Rússlands, og ríkinu Tennessee þar sem rannsóknirnar fóru að mestu leyti fram. Efnin fengu þannig nöfnin moskvíum (Mc) og tennessín (Ts).
Þriðja frumefnið sem hópurinn uppgötvaði með sætistöluna 118 var nefnt oganesson (Og) til heiðurs rússneska vísindamanninum Júrí Oganessian vegna brautryðjendastarfs hans í rannsóknum á frumefnunum.
Með frumefnunum fjórum er sjöunda röð lotukerfisins fyllt. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2011 sem frumefnum er bætt við lotukerfið en þá voru efni númer 114 og 116 tekin í hópinn.
Frumefnin voru búin til með því að láta léttari frumeindakjarna rekast saman og fylgjast með hrörnun þungu geislavirku efnanna sem verða til. Eins og önnur þung frumefni í neðri helmingi lotukerfisins eru nýju frumefnin fjögur aðeins til í sekúndubrot áður en þau hrörna í önnur frumefni.