Patricia Espinosa framkvæmdastjóri Lofslagsstofnunnar Sameinuðu þjóðanna og Adnan Amin framkvæmdastjóri Stofnunnar um endurnýjanlega orku verða meðal ræðumanna á fimmta þingi Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle sem haldið verður í Hörpu um helgina.
Á þinginu verða 135 málstofur með rúmlega 600 ræðumönnum, en tæplega 2.000 þátttakendur frá um 50 löndum taka þátt í þinginu. Segir í fréttatilkynningu Arctic Circle að meðal þátttakenda megi finna áhrifafólk í alþjóðamálum, vísindum, viðskiptum og umhverfismálum.
Umræður um loftslagsbreytingar og örlög Parísarsamkomulagsins munu setja sterkan svip á þingið og verða þeir Espinosa og Amin meðal málshefjandi í þeim umræðum auk patríarksins af Konstantínóbel, loftslagsráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna Thani Al Zeyoudi og Laurene Jobs stofnandi Emerson Elemental. Fjöldi vísindamanna og sérfræðinga mun aukinheldur taka þátt í umræðum um bráðnun íss á Norðurslóðum og baráttuna gegn loftslagsbreytingum.
Fjöldi áhrifakvenna á alþjóðlegum vettvangi munu einnig tala á þinginu, en auk Jobs má þar nefna Nicolu Sturgeon forsætisráðherra Skotlands, Lisu Murkowski öldungadeildarþingmann og formann orkunefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, sem og Ségolène Royal fyrrum orkumálaráðherra og forsetaframbjóðanda í Frakklandi sem nú er sérstakur fulltrúi Frakklandsforseta í málefnum Norðurslóða.