Svo virðist sem mesta hættan vegna KRACK veikleikans sem brýtur WPA2 dulkóðun á þráðlausum WiFi netum sé liðin hjá. Fjarskiptafélögin á Íslandi hafa sett inn öryggisuppfærslur á nánast alla WiFi netbeina sína. (e. router).
Þetta kemur fram á vefsíðu Póst- og fjarskiptastofnunar.
Viðskiptavinum fjarskiptafélaga á Íslandi ætti því í flestum tilvikum að vera óhætt að nota þráðlaus net sín heima og á vinnustöðum. Þeir notendur sem eru með eigin WiFi netbeina ættu að kynna sér hvort komnar eru öryggisuppfærslur fyrir þá.
Hafa ber í huga að þó utanaðkomandi aðili þurfi að vera innan WiFi sviðs viðkomandi tækis til að geta notfært sér öryggisveikleika í WPA2 dulkóðun er það svo að þráðlaus net ná oft talsvert út fyrir veggi heimila, fyrirtækja og stofnana.
„Ætíð gildir að fara skal varlega þegar tengst er við WiFi net á opinberum stöðum eins og á flugvöllum eða veitingastöðum. Þeir sem hafa VPN tengimöguleika ættu að nota þá. Ef fólk þarf að skrá sig inn á vefsíður er alltaf góð regla að athuga hvort þær hafi öryggisvottaða vefslóð, þ.e. að það birtist https fremst í vefslóðinni,“ segir hjá Póst- og fjarskiptastofnun.