Suðurpólför á sólarknúnum plastbíl

Hollenski ofurhuginn Edwin ter Velde ætlar er búinn að smíða sólarknúinn bíl úr endurunnu plasti sem hann hyggst keyra 2300 km leið á Suðurpólnum. Verkefnið er unnið í samvinnu við Arctic Trucks sem mun fylgja með eigin bíl og mann. Bíllinn hefur að undanförnu verið í prófunum hér á landi. 

Verkefnið var kynnt í Perlunni í gær en ter Velde mun keyra leiðina ásamt Lisbeth ter Velde konu sinni. Bíllinn sem hefur fengið nafnið The Solar Voyager hefur verið lengi í þróun og hefur íslenska fyrirtækið Arctic Trucks verið þeim innan handar við það. 

Á kynningunni voru reykvísk skólabörn á staðnum sem hafa fræðst um endurvinnslu á plasti að undanförnu og gert verkefni en stóra markmiðið hjá ter Velde er að vekja athygli á því vandamáli sem plast skapar í heiminum.

mbl.is var í Perlunni og ræddi við ter Velde og Emil Grímsson stjórnarformann Arctic Trucks.

Hægt er að fylgjast með verkefninu sem kallast Clean2Antarctica hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert