Orkusalan kolefnisjafnar eigin raforkuvinnslu

Reynir Kristinsson, stjórnarformaður Kolviðs, og Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orkusölunnar.
Reynir Kristinsson, stjórnarformaður Kolviðs, og Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orkusölunnar. Ljósmynd/Aðsend

Orkusalan kolefnisjafnar eigin raforkuframleiðslu og er kolefnisspor raforkunnar með tilliti til bindingar því ekkert. Fyrirtækið kolefnisjafnar einnig allan rekstur sem hlýst af starfseminni.

Fyrirtækið er fyrsta og eina orkufyrirtækið hér á landi sem kolefnisjafnar eigin raforkuvinnslu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. 

„Við höfum í samstarfi við Eflu verkfræðistofu haldið utan um alla losun sem viðkemur starfsemi fyrirtækisins og höfum frá upphafi kolefnisjafnað allan rekstur með eigin skógrækt. Við vildum taka skrefið enn lengra og ákváðum að jafna einnig alla losun sem hlýst af vinnslu raforkunnar. Vinnsla á rafmagni veldur mismikilli losun en öll okkar raforka kemur frá vatnsaflsvirkjunum sem eru með losun í lágmarki miðað við aðrar vinnsluaðferðir,“ er haft eftir Magnúsi Kristjánssyni, framkvæmdastjóra Orkusölunnar.

Skógur Orkusölunnar við Skeiðsfossvirkjun bindur 122 tonn CO2 á ári en hann þekur 19 hektara á skógræktarsvæðinu sem telur 65 hektara í heild. Skógurinn bindur um þrefalt magn þeirrar losunar gróðurhúsalofttegunda sem fylgir rekstri fyrirtækisins.

„Við ætlum okkur að halda áfram að rækta skóginn á næstu árum og auka nýtingu skógræktarsvæðisins. Svæðið er einnig nýtt til útivistar allan ársins hring með þeirri fjölbreytni og skjóli sem skógurinn gefur,“ er enn fremur haft eftir Magnúsi.

Skógur Orkusölunnar bindur alla losun sem hlýst af rekstri fyrirtækisins og vel rúmlega það og er umframbindingin nýtt til að jafna hluta af eigin raforkuvinnslu og hefur sú losun sem eftir stendur verið jöfnuð í samstarfi við Kolvið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka