Bóluefnið frestast til ársloka 2021

AFP

Franska lyfja­fyr­ir­tækið Sanofi og breska lyfja­fyr­ir­tækið GSK hafa sent frá sér til­kynn­ingu um að bólu­efni þeirra við kór­ónu­veirunni verði ekki til­búið fyrr en í lok árs 2021. Ástæðan er sú að rann­sókn­ir sýni að eldra fólk mynd­ar lítið ónæmi eft­ir að hafa fengið bólu­efnið.

Um er að ræða bólu­efni sem lyfja­fyr­ir­tæk­in hafa unnið að í sam­ein­ingu. Bólu­efnið er eitt þeirra sem Ísland hef­ur samið um að fá aðgang að.

Í til­kynn­ingu sem fyr­ir­tæk­in sendu frá sér í morg­un kem­ur fram að ljóst sé að vinna þurfi frek­ar að þróun bólu­efn­is­ins og því sé ljóst að áætlan­ir um að það verði komið á markað um mitt næsta ár stand­ist ekki og frest­ist til fjórða árs­fjórðungs.

Um er að ræða klín­ísk­ar rann­sókn­ir á virkni bólu­efn­is­ins. Þar kem­ur fram að þetta eigi aðeins við eldri ein­stak­linga sem tóku þátt í rann­sókn­inni. Hjá fólki á aldr­in­um 18-49 mynda 89,6% þátt­tak­enda mót­efni, 85% þátt­tak­enda á sex­tugs­aldri mynda mót­efni en aðeins 62,5% þeirra sem eru komn­ir yfir sex­tugt.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert