Lagastofun falið að semja kynningarefni

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur falið Lagastofnun Háskóla Íslands að semja hlutlaust kynningarefni fyrir almenning vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin, sem fram fer laugardaginn 6. mars. 

Segir ráðuneytið, að þetta sé gert í samræmi við nefndarálit allsherjarnefndar Alþingis um mikilvægi slíkrar kynningar og umræður á Alþingi. Efnið var kynnt nefndinni á fundi í morgun.

Lagastofnun var falið að semja texta þar sem útskýrð eru í stuttu máli nokkur meginatriði sem varða þjóðaratkvæðagreiðsluna, ástæður hennar og afleiðingar. Efninu er ekki ætlað að reifa ólík sjónarmið um það efni sem kosið verður um. Ekki koma að verkefninu einstaklingar sem hafa tekið þátt í umræðum á opinberum vettvangi um það efni sem kosið er um í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Textinn er ætlaður til notkunar á sérstakri vefsíðu, thjodaratkvaedi.is, sem opnuð verður á næstu dögum og í kynningarbæklingi sem dreift verður um allt land. Miðað er við að dreifingu hans verði lokið um tíu dögum fyrir kjördag. Lagastofnun hefur fengið til liðs við sig almannatengslafyrirtækið Athygli sem annast hönnun og framsetningu efnis á vef og í bæklingi.

mbl.is

Bloggað um fréttina