Að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun spurði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, blaðamenn hvernig þeir héldu að það gengi að semja um Icesave þegar fulltrúar í samningaliðinu vildu ekki nýjan samning. Að svo búnu stóð hann upp en hann átti bókað flug til Akureyrar í hádeginu.