Tæplega 10 þúsund hafa kosið

Kjörkassar tæmdir í Ráðhúsinu í dag
Kjörkassar tæmdir í Ráðhúsinu í dag mbl.is/Árni Sæberg

Byrjað var að flokka utankjörfundaatkvæði í Ráðhúsi Reykjavíkur í hádeginu en alls höfðu þá 9.684 greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúa sýslumannins í Reykjavík. Þar af höfðu 6.190 greitt atkvæði í Laugardalshöllinni.

Hægt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar til klukkan 22 í kvöld og til klukkan 18 á morgun í Laugardalshöllinni. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan í Laugardalshöll á morgun er þó einungis í boði fyrir þá sem eiga um langan veg að fara í sína kjördeild.

Mun færri hafa kosið utan kjörfundar nú heldur en á sama tíma fyrir þingkosningarnar árin 2007 og 2009. Í gær höfðu 5.776 kosið utan kjörfundar í Reykjavík. Á fimmtudegi fyrir kosningarnar í fyrra höfðu 10.882 kosið utan kjörfundar og 10.318 á fimmtudegi fyrir kosningarnar 2007. Samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu hefur atkvæðagreiðslan tekið kipp síðustu daga og verið áþekk því sem gerist síðustu daga fyrir þingkosningar. 

Ýmsar skýringar geta verið á minni kjörsókn, s.s. minni áhugi og að valkostirnir séu ekki eins skýrir í hugum kjósenda. Einnig getur spilað inn í að minna er um ferðalög í byrjun mars en á vorin, þegar kosningar eru alla jafnan haldnar. Þá hefur utankjörfundaratkvæðagreiðslan verið í boði í skemmri tíma. Fyrir þing- og sveitastjórnarkosningar er byrjað að greiða atkvæði utan kjörfundar átta vikum fyrir kjördag. Nú hófst utankjörfundaratkvæðagreiðslan þann 25. janúar, þ.e. tæplega sex vikum fyrir kjördag.

mbl.is