Utanríkismálanefnd Alþingis átti í gær fundi í London með fjárlaganefnd breska þingsins og að því loknu fjárlaganefnd.
Mestum tíma var varið í að skiptast á skoðunum um Icesave og segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, fundina hafa verið gagnlega. Bresku þingmennirnir hafi verið jákvæðir í garð Íslendinga. Voru Bretar hvattir til að koma til nýrra viðræðna skilmálalaust.
Sjá nánari umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag.