Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands í Icesave - málinu funduðu í Lundúnum í gær og lauk fundum í gærkvöldi, að því er fram kemur á vef fjármálaráðuneytisins.
Íslenska samninganefndin mun gera formönnum allra flokka á Alþingi sem stóðu að skipun nefndarinnar, grein fyrir niðurstöðum viðræðnanna í dag.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is hefur tímasetning fundar með formönnum flokkanna ekki verið ákveðin.