Telja nauðsynlegt að leysa Icesave

Samtök atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins hafa allt frá því íslenska bankakerfið hrundi haustið 2008 hvatt til þess að reynt yrði sem fyrst að koma viðskiptum Íslands við aðrar þjóðir í eðlilegt horf. Því hafa samtökin stutt allar tilraunir starfandi ríkisstjórna á þessum tíma til að ná samkomulagi við við stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi um svokallað Icesave-mál, samkvæmt frétt á vef samtakanna.

„Lausn þess er einn liður í endurreisn efnahagslífsins sem hefur dregist allt of lengi, en fleira þarf að koma til. Yfir 14 þúsund manns eru án atvinnu á Íslandi og þúsundir hafa yfirgefið landið í leit að betri tækifærum. SA telja þetta ólíðandi og hafa því lagt fram ítarlega aðgerðaáætlun um endurreisn atvinnulífsins.

Lausn milliríkjadeilunnar við Breta og Hollendinga er einn liður í þeirri áætlun en til að komast út úr kreppunni þarf Ísland að fjárfesta í arðbærum útflutningsgreinum. Til þess þarf atvinnulífið greiðan aðgang að innlendu og erlendu lánsfé á viðráðanlegum kjörum og opinn aðgang að erlendum fjármálamörkuðum," segir á vef SA.

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina