„Við munum ekki leggja það til að málið fari í þjóðaratkvæðagreiðslu enda er sú ákvörðun á herðum annarra en okkar“, segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra aðspurður um lyktir í Icesave málinu. Hann segir niðurstöðuna sanngjarna og ólíklegt að samkomulag náist um hagstæðari vaxtakjör og vonast eftir breiðri samstöðu á þingi.