Skjálfandafljótið var opnað í morgun og eru komnir a.m.k. sex laxar á land og talsvert fleiri sést á sveimi í þessari mögnuðu og dularfullu á.
Eingöngu er veitt á fjórar stangir þannig að þetta telst vel viðunandi árangur í þessari á sem ekki margir þekkja. Áin skartar sínu fegursta fyrir veiðimenn, ef svo má að orði komast, og liturinn áþekkur Blöndu eða Eystri-Rangá á þeirra bestu dögum. Þetta er veiðisvæði sem menn bíða spenntir eftir að sjá árangurinn af því fátt er vitað um svæðið fyrir utan þann hóp sem hefur veitt ána lengi og þekkir hana, en heildarveiðin á hverju sumri er nokkuð góð og fiskurinn sem þarna veiðist að öllu jöfnu vænn.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |