Ég hitti ungan veiðimann fyrir nokkrum dögum og sá spurði mig hvort ég vissi hvernig veiðin hafi verið í gamla daga.
Þegar ég var búinn að jafna mig á þeirri staðreynd að í augum þessa veiðimanns var ég einn af þeim sem var uppi í "gamla daga" spurði ég hann hversu langt aftur hann vildi að ég athugaði. Þá bað hann mig um að athuga hvernig veiðin var þegar ég var jafn gamall honum. Árið er 1982, ég er 10 ára og þetta var veiðin í toppánum.
Elliðaár 1219 laxar
Laxá í Kjós 927 laxar
Grímsá 717 laxar
Norðurá 1455 laxar
Langá 1090 laxar
Hrútafjarðará 45 laxar
Miðfjarðará 926 laxar
Víðidalsá 1132 laxar
Laxá í Ásum 1036 laxar
Blanda 861 lax
Laxá í Aðaldal 1304 laxar
Selá 168 laxar (nei, það vantar ekki tölu)
Hofsá 141 lax
Sogið 343 laxar
Eins og sjá má hafa alveg komið léleg ár í sumar árnar og árið 1982 var eitt af þeim. EN eftir öldudal slæmra ára koma alltaf góð ár. Árið í ár er vissulega lélegt víða en viðunandi annars staðar. En eins og sjá má á þessum lista hefur verið allt annað en líflegt við Selá, Hrútu og Hofsá á því annars ágæta ári 1982.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |