Hamfarir í ám á Vesturlandi

Vatn í ám á Vesturlandi er nú af skornum skammti. …
Vatn í ám á Vesturlandi er nú af skornum skammti. Laxfoss í Norðurá skartaði sínu fegursta í byrjun sumars en er nú ekki svipur hjá sjón. Ljósmynd/Norðurá

„Það er búið að vera þurrt og lítil úrkoma upp á síðkastið og allar vorleysingar búnar,“ segir Kristín Elísa Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. „Það er alveg eðlilegt fyrir þennan árstíma,“ segir hún en margir veiðimenn eru með böggum hildar yfir vatnsbúskapnum á Vesturlandi.

Hægt er að fylgjast með rennsli í völdum ám á vef Veðurstofunnar og þar má til dæmis sjá að rennsli í Norðurá í Borgarfirði undanfarinn sólarhring nær ekki þremur rúmmetrum á sekúndu og í Haukadalsá í Dölum er það komið undir einn rúmmetra.

Kristín kannast við vonbrigði veiðimanna vegna sumarblíðunnar. „Það hefur ekki rignt almennilega síðan í júní.“

Hún útilokar ekki að loftslagsbreytingar hafi orsakað þetta ástand. „Þær munu hafa ýmis áhrif á veðrið hjá okkur.“ Samhliða hlýju veðurfari og minnkandi vatni í ánum hefur vatnshiti hækkað og fiskur verið latur til töku. Dæmi er um að vatnshiti í ám sé kominn yfir 15 gráður.

Ekki upp á marga fiska

Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, segir að þurrkatíðin hafi verið með eindæmum, sem hafi haft áhrif á laxveiðina á Vesturlandi síðustu daga og vikur. 

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Richard Jewell 9. ágúst 9.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert