Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Um 47% meðlagsgreiðenda og 53% einstæðra meðlagsgreiðenda eru á vanskilaskrá. Langflestir í þessum hópi, eða allt að 95%, eru karlmenn þó að hópur kvenna fari stækkandi.
Meira
„Á málþinginu var greinilegt að fólki fannst óperuformið eiga framtíð því þar sameinast listirnar,“ segir Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari, sem hélt nýverið framsöguerindi á málþingi um framtíð óperuflutnings á Íslandi.
Meira
Með bjartari dögum og auknu sólskini fer sundlaugarferðunum Íslendinga fjölgandi. Þessir krakkar busluðu og skemmtu sér vel í vorveðrinu í Laugardalslauginni um helgina ásamt öðrum sundlaugargestum sem tóku batnandi veðri fagnandi.
Meira
Hestadögum í Reykjavík lauk með sýningunni Æskan og hesturinn í reiðhöllinni í Víðidal í gær. Þar léku börn og unglingar listir sínar á hestum. Meðal annars reyndu börnin fyrir sér í hestafótbolta. Lið frá Fylki í Árbæ og Fjölni í Grafarvogi léku.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 470 orð
| 2 myndir
Maður sem brenndist þegar eldur kom upp í sumarhúsi við Geitasand skammt frá Hellu fyrir tæpum tveimur vikum liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 221 orð
| 1 mynd
Fjöldi félagsmanna í Landvernd hefur fimmfaldast á tveimur árum. Formaður samtakanna segir að unnið hafi verið að fjölgun félagsmanna en margir hafi einnig gengið til liðs við þau í tengslum við verkefni sem þau hafi unnið að.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 846 orð
| 3 myndir
Sviðsljós Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fjögurra ára börnum verður boðin skólavist í Flataskóla í Garðabæ í haust. Fimm ára bekkur hefur verið starfræktur við skólann í tvö ár og gefist vel.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 113 orð
| 1 mynd
Fjögurra ára börnum verður boðin skólavist í Flataskóla í Garðabæ í haust. Skólayfirvöld ákváðu að láta reyna á það eftir að foreldrar sýndu slíku starfi áhuga. Fimm ára bekkur hefur verið starfræktur við skólann í tvö ár og gefist vel.
Meira
Samþykkt var í borgarráði á fimmtudaginn að úthluta lóðum til Félags eldri borgara og Samtaka aldraðra, og yrði gert ráð fyrir að reisa 50 íbúðir á hvorum stað fyrir sig.
Meira
Kínverska skipið Haixun 01 heyrði hljóð um helgina sem talin eru geta verið úr flugrita malasísku farþegavélarinnar sem hvarf af ratsjá fyrir rúmum fjórum vikum. Þó hefur ekki verið staðfest að hljóðin komi úr flugrita vélarinnar.
Meira
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur hótað því að beita stjórnvöld í Palestínu einhliða aðgerðum ef þau hætta ekki við áform sín um að sækja um aðild að ýmsum alþjóðasáttmálum.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 594 orð
| 3 myndir
Fréttaskýring Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Hinn 3. apríl síðastliðinn voru 30 ár liðin frá því að Reykjavíkurborg hóf að veita undanþágur frá banni við hundahaldi í höfuðborginni, sem hafði verið í gildi frá 1924.
Meira
Miðstöð íslenskra bókmennta og Félag íslenskra bókaútgefenda taka þátt í Bókasýningunni í London sem haldin verður dagana 8.-10. apríl. Líkt og í fyrra verða Norðurlönd með sameiginlegan bás á bókasýningunni.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 823 orð
| 5 myndir
Baksvið Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Áframhald á breytingu og endurgerð Borgartúns stendur nú yfir milli Katrínartúns og Snorrabrautar og er áætlaður kostnaður við framkvæmdina 70 milljónir króna.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 191 orð
| 1 mynd
Full rennsli komst á Nesjavallaæð að nýju um miðjan dag á laugardag, en rennslið í lögninni stöðvaðist nánast á fimmtudagskvöld. Líklegast er talið að loft í lögninni hafi valdið því og sjálfvirkur lofttæmibúnaður virkaði ekki sem skyldi.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 439 orð
| 1 mynd
Mikill atgangur var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um helgina en fjórir ökumenn voru teknir úr umferð aðfaranótt sunnudags vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna og tveir fyrir ölvunarakstur.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 360 orð
| 1 mynd
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nemendur í framhaldsskólum snúa aftur til náms í dag, en nýir kjarasamningar kennara voru undirritaðir á föstudaginn.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 305 orð
| 2 myndir
Benedikt Jóhannesson segir ekki hægt að fullyrða um það eða útiloka að nýr stjórnmálaflokkur Evrópusinna sem rætt hefur verið um að stofna bjóði fram í kosningum til sveitarstjórna. Hann segir að þetta hljóti að verða skoðað þar sem kosningar séu í vor.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 520 orð
| 2 myndir
Lögreglumenn í Venesúela ganga um götur vopnaðir til að berja niður mótmæli stjórnarandstæðinga og stúdenta. Hátt í 1.400 manns hafa verið handteknir vegna mótmælanna sem staðið hafa yfir í nokkrar vikur.
Meira
Fjör í Hörpu Áhorfendur skemmtu sér konunglega á úrslitakvöldi Músíktilrauna í Hörpu á laugardag. Tíu hljómsveitir komust í úrslit tónlistarhátíðarinnar og þóttu standa sig með mikilli...
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 152 orð
| 1 mynd
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ríkisstjórnin vill gera gagngerar breytingar á skattkerfinu, draga úr beinum sköttum og treysta frekar á neysluskatta.
Meira
7. apríl 2014
| Innlendar fréttir
| 116 orð
| 1 mynd
Uppsprettan verður haldin í annað skipti í Tjarnarbíói í dag. Fyrirkomulag hennar er þannig að leikarar og leikstjórar hafa aðeins einn sólarhring til að lesa handrit að nýjum stuttverkum og átta sig á möguleikum þeirra.
Meira
Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Þingkosningar fóru fram í Ungverjalandi í gær og samkvæmt útgönguspám sigraði flokkur Viktors Orbans, forsætisráðherra Ungverjalands, örugglega í þingkosningunum.
Meira
7. apríl 2014
| Innlent - greinar
| 1616 orð
| 5 myndir
FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Miklar breytingar verða á byggð, mannlífi og umferð í Reykjavík ef hið nýja aðalskipulag borgarinnar sem nær til ársins 2030 verður að veruleika.
Meira
Frakkinn François Heisbourg er forstöðumaður virtrar stofnunar í Lundúnum, International Institute for Strategic Studies, og eindreginn stuðningsmaður Evrópusambandsins og aukins samruna þess.
Meira
Þeir sem vilja kynnast einhverju nýju mæta ekki í óperuna. Það er þó ekki aðeins við ákveðna stjórnendur Óperunnar að sakast því það þarf að koma til ný sýn, bæði hjá stjórnvöldum og okkur sem vinnum við þetta listform.
Meira
Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is Sara Pétursdóttir, 17 ára hársnyrtinemi í Tækniskólanum, sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna á laugardagskvöld.
Meira
Af tilraunum Ragnheiður Eiríksdóttir heidatrubador@gmail.com Úrslitakvöld Músiktilrauna fór fram laugardagskvöldið 5. apríl í Hörpu, og þar mátti sjá og heyra þær 10 hljómsveitir sem sköruðu fram úr af þeim 44 sem tóku þátt í ár.
Meira
Bresku þættirnir um Martin lækni, sem RÚV sýnir vikulega, vinna stöðugt á. Martin Clunes, sem leikur lækninn, hefur skapað afar eftirminnilega persónu sem hrein unun er að fylgjast með.
Meira
Eftir Finn Magnússon: "Nú um stundir... keppa ríki heims um hylli erlendra fjárfesta og eru tilbúin að bjóða hvers kyns ívilnanir í þeim tilgangi að laða að erlenda fjárfestingu."
Meira
Undirritaður hefur fengið að njóta hins nýja Borgartúns nokkrum sinnum eftir að gatan var „fegruð“ með því að þrengja götuna, fækka bílastæðum og setja upp ljótustu ljósastaura sem sést hafa norðan Alpafjalla.
Meira
7. apríl 2014
| Bréf til blaðsins
| 249 orð
| 1 mynd
Frá Páli Pálmari Daníelssyni: "Hvers konar snilld er nú Radíó stam? Hvernig gat málhaltur maður náð svona ótrúlega góðum árangri í útvarpsrekstri? Hann gerir mörgu fullfrísku fólkinu skömm til, eins og sagt var í mínu ungdæmi."
Meira
Biggest Loser Ísland Jæja, nú er sigurvegari í fyrstu þáttaröðinni fundinn og óska ég honum til hamingju með árangurinn, ekki amalegur árangur að taka af sér tugi kílóa á þessum síðustu og verstu.
Meira
Eftir Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur: "Misskilningurinn er sá að margir lesa út úr þessum tilmælum að það sé verið að banna samkynhneigðum hérlendis að ættleiða."
Meira
Einar Þór Jóhannsson fæddist á Egilsstöðum 20. júlí 1995. Hann lést 29. mars 2014. Einar Þór var sonur Jóhanns Óla Einarssonar, f. 10. mars 1970, og Ragnhildar Írisar Einarsdóttur, f. 4. júní 1976. Bræður Einars eru Sævar Elí Jóhannsson, f. 19.
MeiraKaupa minningabók
Svavar Guðni Guðnason fæddist í Reykjavík 27. október 1980. Hann lést á Landspítalanum í fossvogi 30. mars sl. Svavar var elsta barn hjónanna Kristínar G. Ólafsdóttur, f. 19. júlí 1961, og Guðna B. Svavarssonar, f. 3. janúar 1960.
MeiraKaupa minningabók
Svava Þorbjarnardóttir söngkona fæddist á Hraunsnefi í Norðurárdal 13. janúar 1917. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík 18. mars 2014. Svava var jarðsungin frá Dómkirkjunni 2. apríl 2014.
MeiraKaupa minningabók
Vilhjálmur Sigurðsson fæddist í Straumi í Straumsvík 7. apríl 1932. Hann lést 2. janúar 2014 á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi. Vilhjálmur var jarðsunginn frá Garðakirkju á Álftanesi 14. janúar 2014.
MeiraKaupa minningabók
Fjármálafyrirtæki lækkuðu almennt á bandaríska hlutabréfamarkaðinum á föstudag. Lækkunin er m.a. rakin til nýjustu talna af vinnumarkaði sem sýndu að atvinnuleysi í mars hélst óbreytt á milli mánaða.
Meira
Brendan Eich hefur sagt af sér sem framkvæmdastjóri Mozilla Corp, fyrirtækisins sem framleiðir netvafrann Firefox. Afsögnin kemur í kjölfarið á herferð á netinu gegn ráðningu Eich, en netverjar höfðu horn í síðu hans fyrir að hafa árið 2008 látið 1.
Meira
Alls bárust tuttugu umsóknir um styrk úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka en ákveðið hefur verið að af þeim hljóti fimm styrk, samtals að upphæð tíu milljónir króna. Sjóðnum er ætlað að styðja við nýsköpun í sjávarútvegi og endurnýjanlegri orku.
Meira
Allir hafa rödd, hvort sem þeir tala til sín upphátt eða í hljóði. Þessi rödd er í raun hugsanir okkar sem aðstoða okkur við að vega og meta það sem við upplifum og við að álykta hvað sé best að gera í kjölfarið.
Meira
Á miðvikudaginn hefst árleg ráðstefna UMFÍ, Ungt fólk og lýðræði, og er hún nú haldin í fimmta sinn. Þema ráðstefnunnar þetta árið er stjórnsýsla og hvaða áhrif ungt fólk getur haft á hana.
Meira
Nemendur í 8.-10. bekk í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi hafa undanfarna tvo mánuði unnið hörðum höndum að uppsetningu leikritsins Bugsy Malone í leikstjórn Ragnheiðar Maísólar Sturludóttur.
Meira
Á morgun þriðjudag mun Kristín Svava Tómasdóttir, MA-nemi í sagnfræði við Háskóla Íslands, flytja erindi sem kallast „Ritun íslenskrar klámsögu frá Bósa fram að vídeóbyltingu“.
Meira
Jón Arnljótsson skrifar að nú megi heyra tófugagg á öllum tímum sólarhringsins, til dæmis í fyrrakvöld um hálftólfleytið: Í rökkrinu dillar hún rófunni, refanna náandi fundum. Tilhugalífið hjá tófunni er troðfullt af ánægjustundum.
Meira
Nú bara að byrja undirbúning að mikilli hátíð. Við Elín Einarsdóttir, konan mín eigum samanlagt aldarafmæli á þessu vori og ætlum að halda upp á það með því að bjóða til okkar góðu fólki þann 2. maí.
Meira
Hafsteinn Guðmundsson, bókaútgefandi og prentsmiðjustjóri, fæddist í Vestmannaeyjum 7.4. 1912. Foreldrar hans voru Guðrún Kristjánsdóttir, húsfreyja og saumakona, og Guðmundur Helgason, steinsmiður í Reykjavík og síðar sjómaður í Vestmannaeyjum.
Meira
Kópavogur Elías Alexander fæddist 16. júlí kl. 14.36. Hann vó 2.875 g og var 49 cm langur. Foreldrar hans eru Jónína Kristín Einarsdóttir og Sebastian Drozyner...
Meira
Kópavogur Lovísa Ósk fæddist 1. júlí kl. 9.28. Hún vó 3.815 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Silja Ósk Georgsdóttir og Sigurgeir Valgeirsson...
Meira
Í ljósi einnar merkingar so. að æja : „segja æ, kveinka sér, stynja, hljóða, veina“ (ÍO), er skiljanlegt að menn kveinki sér við að æja t.d. við Mývatn og vilji frekar á þar.
Meira
Hrafnkell Orri fæddist í Reykjavík 7.4. 1974 en ólst upp í Kópavogi. Hann gekk í Snælandsskóla frá sex ára aldri og lauk stúdentsprófi frá MH 1994. Hrafnhell hóf nám í sellóleik átta ára að aldri hjá Hauki F.
Meira
30 ára Sigurbjörg ólst upp í Bolungarvík, stundar nám í viðskiptafræði við HA og starfar hjá Eimskip á Ísafirði. Maki: Halldór G. Jóhannsson, f. 1971, húsasmiður. Sonur: Jóhann Pétur Halldórsson, f. 2012. Foreldrar: Hallgrímur Óli Helgason, f.
Meira
30 ára Skúli ólst upp í Reykjanesbæ, útskrifaðist sem atvinnuflugmaður frá Flugskóla Íslands 2012, er að ljúka BS-prófi í viðskiptafræði frá HR og starfar hjá föður sínum við Pulsuvagninn í Keflavík. Maki: Lilja Dís Kristjánsdóttir, f.
Meira
30 ára Sveinn býr í Hafnarfirði, lauk prófum frá atvinnuköfunarskóla í Noregi, stundar köfun og nám í tölvunarfræði við HR. Sonur: Bjarni Anton Dal Sveinsson, f. 2012. Foreldrar: Björn Anton Einarsson, f.
Meira
90 ára Michael Guðvarðarson Ragnar Benediktsson 85 ára Guðlaug Runólfsdóttir Sigurjón Jónasson Sveinn Kristjánsson Theódóra Guðmundsdóttir 80 ára Friðbjörg Ingibergsdóttir Guðmundur Finnbogason Karen Lísa Guðmundsdóttir Kristján Kristjánsson 75 ára Edda...
Meira
Fyrir langa löngu sótti Víkverji stutt námskeið í sölutækni. Þar lærði hann framandi hugtök eins og söluhiti , en ennfremur að flokka viðskiptavini sem ljón, gíraffa og eitthvað eitt dýr enn sem Víkverji er búinn að gleyma.
Meira
7. apríl 1906 Ingvarsslysið. Tuttugu menn fórust þegar þilskipið Ingvar RE 100 strandaði í ofsaveðri skammt undan Viðey. Í sama „útsynnings-ofsaroki“ fórust 48 menn með tveimur skipum við Mýrar, Sophie Wheatly RE 50 og Emilie RE 25. 7.
Meira
Í Hlíðarfjalli Einar Sigtryggsson sport@mbl.is Skíðamóti Íslands lauk í Hlíðarfjalli á Akureyri í gær. Keppt var í göngu- og alpagreinum og voru ólympíufarar Íslendinga áberandi þegar kom að titlunum.
Meira
7. apríl 1968 Íslenska karlalandsliðið í handknattleik vinnur sinn fyrsta sigur á Dönum frá upphafi, í áttundu tilraun, 15:10, í vináttulandsleik í troðfullri Laugardalshöll.
Meira
„Þetta var tvímælalaust einn af sætari sigrunum hjá mér,“ sagði Pétur Eyþórsson, glímukóngur Íslands, þegar Morgunblaðið spurði hann út í sigurinn í Íslandsglímunni um helgina.
Meira
Brann – Stabæk 1:2 • Birkir Már Sævarsson spilaði allan leikinn fyrir Brann. Lilleström – Sandnes Ulf 4:1 • Pálmi Rafn Pálmason var í byrjunarliði Lilleström og skoraði annað mark liðsins á 58. mínútu.
Meira
Dominos-deild kvenna Þriðji úrslitaleikur: Snæfell – Haukar 69:62 *Snæfell vann einvígið, 3:0, og er því Íslandsmeistari. Dominos-deild karla: Undanúrslit, annar leikur: Stjarnan – KR 68:94 *Staðan er 2:0 fyrir KR.
Meira
Flestir karlmenn kannast við þá tilfinningu sem grípur þá þegar þeir fara að hitta tengdamóður sína í fyrsta skipti. Í mínu tilfelli var það þannig að nýja kærastan bjó á Reykjaskóla og fór ég stundum í heimsókn um helgar.
Meira
Hilmar Örn Jónsson, sleggjukastari úr ÍR, náði í gær öðrum besta árangri Íslendings í sleggjukasti þegar hann kastaði sleggjunni 67,34 metra á fyrsta Coca Cola-móti FH-inga á Kaplakrikavelli í gær.
Meira
í stykkishólmi Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Snæfell varð í gær Íslandsmeistari í fyrsta sinn í körfuknattleik kvenna þegar liðið lagði Hauka, 69:62, í þriðja leik liðanna í úrslitarimmunni.
Meira
Jórunn Harðardóttir, formaður Skotfélags Reykjavíkur, setti Íslandsmet í skotfimi með enskum riffli þar sem skotið er liggjandi af 50 metra færi á Íslandsmótinu í greininni á laugardag. Keppendur hleypa af 60 skotum í greininni.
Meira
Um helgina fór fram Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í frjálsum íþóttum innanhúss og í sundi. 4 Íslandsmet féllu í Laugardalslauginni, eitt í einstaklingsgrein og þrjú í boðsundi.
Meira
Gærdagurinn var góður fyrir liðin tvö úr Liverpool-borg, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liverpool endurheimti toppsætið sem Chelsea hafði haldið heitu fyrir rauða herinn í um það bil sólarhring.
Meira
Lazio – Sampdoria 2:0 • Birkir Bjarnason sat á varamannabekk Sampdoria allan leikinn. Chievo – Hellas Verona 0:1 • Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Verona og lék í 84 mínútur.
Meira
Í Ólafsvík Þorkell Gunnar Sigurbjörnss. thorkell@mbl.is Sem betur fer fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta var þessi leikur gegn Austurríki í Ólafsvík á laugardag bara æfingaleikur því frammistaða íslenska liðsins var döpur.
Meira
Snæfell varð í gærkvöld Íslandsmeistari kvenna í körfubolta í fyrsta sinn þegar liðið lagði Hauka að velli í þriðja úrslitaleik liðanna. Snæfell fagnaði titlinum á heimavelli eftir sigur á Haukum í Stykkishólmi, 69:62.
Meira
Badminton Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Það var heilmikið um dýrðir í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði um helgina þegar Meistaramót Íslands í badminton fór fram.
Meira
í stykkishólmi Kristján Jónsson kris@mbl.is Landsliðskonan Hildur Sigurðardóttir flutti heim í Stykkishólm sumarið 2011 með þá von í brjósti að gera uppeldisfélag sitt Snæfell að Íslandsmeisturum í körfuknattleik.
Meira
Ólympíufarinn Sævar Birgisson var afar sigursæll í skíðagöngu á Skíðalandsmóti Íslands um helgina á Akureyri. Sævar rakaði til sín verðlaunum og vann gull í öllum greinunum þremur sem hann tók þátt í.
Meira
Tinna Helgadóttir vann þrefalt á Meistaramóti Íslands í badminton sem lauk í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Tinna varð Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna í þriðja sinn og vann í tvíliðaleik í annað sinn.
Meira
Valladolid – Valencia 0:0 Sevilla – Espanyol 4:1 Elche – Getafe 1:0 Málaga – Granada 4:1 Rayo Vallecano – Celta Vigo 3:0 Real Sociedad – Real Madrid 0:4 Barcelona – Real Betis 3:1 Atlético Madrid –...
Meira
Viðar Örn Kjartansson opnaði markareikning sinn hjá Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær, þegar hann skoraði tvö mörk í 3:1-sigri liðsins á Bodö/Glimt. Íslendingar voru fyrirferðarmiklir í markaskorun í Evrópu um helgina.
Meira
Hin 18 ára gamla Vigdís Jónsdóttir úr FH bætti Íslandsmetið í sleggjukasti kvenna um 1,04 metra á fyrsta Coca Cola-móti frjálsíþróttadeildar FH á Kaplakrikavelli í gær.
Meira
Vitesse – Ajax 1:1 • Kolbeinn Sigþórsson jafnaði metin fyrir Ajax með marki á 47. mínútu. Hann var í byrjunarliðinu og lék í 78 mínútur. Roda – AZ Alkmaar 2:2 • Aron Jóhannsson lagði upp fyrra mark AZ og skoraði síðara mark...
Meira
Fótbolti Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Það var þolinmæðisvinna sem mætti íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu á laugardag þegar liðið heimsótti Ísrael í undankeppni heimsmeistaramótsins.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.