Eldaðu einu sinni, borðaðu 5 sinnum

Pottrétturinn sem njóta má nokkra daga í röð.
Pottrétturinn sem njóta má nokkra daga í röð. Sara Barðdal

Einkaþjálfarinn og heilsumarkþjálfinn Sara Barðdal, sem heldur úti heimasíðunni Sterkari á 16, deilir með okkur uppskrift af ljúffengum pottrétti, sem sérlega auðvelt er að nýta í nokkra daga.

„Ég elska að skipuleggja daginn þannig að ég þurfi að elda sem sjaldnast og geti nýtt afganga aftur og aftur. Ég bjó því til dásamlegan pottrétt sem entist mér og fjölskyldunni í 5 máltíðir. Tíminn sem ég eyddi eldhúsinu dagana eftir var því afar stuttur.“

„Mér finnst mjög gaman að nýta hráefnið sem ég á inní ísskáp. Þess vegna henti ég því sem mér fannst passa vel saman í pott, og það kom svona dásamlega út.“

Dásamlegur pottréttur

2 litlar sætar kartöflur ( eða 1 stór)

1 rauð paprika

1 laukur

2 hvítlauksgeirar

1 bolli niðurskorið hvítkál

1-2 lúkur niðurskorið spergilkál

1-2 gulrætur (2 ef gulræturnar eru litlar)

2 dósir niðurskornir tómatar

2 dósir baunir (til dæmis aduki eða svartar baunir)

2 msk grænmetiskraftur

1 tsk chili-duft

1 tsk hvítlauksduft

örlítill cayenne pipar

salt og pipar eftir smekk

Smá vatn (1/2 - 1 bolli)

1 bolli kínóa (sjóða á móti 2 bollum af vatni) - nauðsynlegt er að vera búin að leyfa korninu að liggja í vatni og skola vel áður en þú eldar.

  1. Skerðu niður grænmetið. Byrjaðu á því að mýkja hvítlaukinn og laukinn í nokkrar mínútur og bættu síðan restinni af grænmetinu í pottinn.
  2. Settu tómatana úr dósinni, vatnið og kryddið saman við og leyfðu suðunni að koma upp.
  3. Settu kínóað í vatn og stilltu á hæsta hita til þess að fá suðuna upp, þegar hún er komin lækkaðu þá niður og leyfðu að malla í sirka 15 mín eða þangað til vatnið er gufað upp og kínóað hefur bólgnað út. (Ég krydda oft með smá salti og túrmerik)
  4. Þegar pottrétturinn hefur mallað í 15 mín getur þú bætt baununum við og leyft öllu að malla í sirka 5-10 mín til viðbótar, eða þangað til allt grænmetið er orðið mjúkt.
  5. Kryddaðu til eftir smekk, ég nota frekar mikið krydd því mér finnst gott að hafa hlutina svolítið sterka. Þú getur einnig notað önnur krydd sem passa eins og paprikukrydd, eða hvað sem þér dettur í hug. (Ég hef líklega notað meira magn en í lýsingunni, þannig prófaðu þig endilega áfram).

Næstu dagar litu síðan svona út:

Dagur 1:

Morgunmatur: Hafragrautur með kanil og rúsínum

Hádegismatur: Eggjahræra með steiktu grænmeti og boozt.

Kvöldmatur: Pottréttur með kínóa fyrir 3

Dagur 2:

Morgunmatur: Hafragrautur með kanil og rúsínum

Hádegismatur: Afgangur af pottrétti fyrir 1, toppað með lárperu og fersku salati. (núna var ég búin að blanda saman kínóanu við réttinn og allt búið að liggja yfir nóttu (mjög bragðgott)

Kvöldmatur: Quesadillas með grænmetisfyllingu fyrir 3 ( Við keyptum grófar fajitas kökur og notuðum pottréttinn sem fyllingu ásamt fersku grænmeti, lárperu og salsa og hituðum í ofni - hrikalega gott)

Dagur 3:

Morgunmatur: Hafragrautur með kanil og rúsínum

Hádegismatur: Quesadillas fyrir 1

Kvöldmatur: Quesadillas fyrir 3 (sama og daginn áður) - Hægt að nota mismunandi ferskt grænmeti og t.d guacamole til að krydda uppá.

„Þetta einfaldaði matargerðinu ótrúlega mikið yfir þessa daga og tók aðeins nokkrar mínútur að græja og hita. Sumum gæti fundist þetta of mikið af því sama, en þegar maður breytir aðeins til með því að nota grófar fajitas kökur til dæmis, verður þetta að allt öðrum rétti. Einnig legg ég mikla áherslu á að millimálin mín séu fjölbreytt og góð þannig dagurinn verði ekki einhæfur og leiðinlegur. Ég vona að þú prófir og sjáir hvort þetta geti ekki sparað þér tíma í eldhúsinu.“

Sara Barðdal, einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi, trúir að allir geti fundið …
Sara Barðdal, einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi, trúir að allir geti fundið sér tíma til að hreyfa sig. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert