Gunni Palli opnar nýjan vínbar

Staðurinn er smekklega innréttaður.
Staðurinn er smekklega innréttaður. Port 9

Gunnar Páll Rúnarsson betur þekktur sem Gunni Palli á Vínbarnum sáluga hefur snúið aftur tvíelfdur á barsenuna en býður nú einnig upp á morgunmat. Gunni rak um árabil einn vinsælasta vínbar landsins, Vinbarinn við Dómkirkjuna. Barinn var vinsæll meðal stjórnmálamanna og þekktra einstaklinga en þar var að finna stórgott úrval af vínum í bland við ostabakka frameftir kvöldi. Gunni hefur nú opnað nýjan bar við Veghúsastíg 9, nánar tiltekið í portinu og því heitir staðurinn Port 9. 

Gunni Palli er kátur með móttökurnar en barinn er strax …
Gunni Palli er kátur með móttökurnar en barinn er strax orðin sturlað vinsæll. Port 9
Port 9

Staðurinn hefur einungis verið opinn í nokkra daga og er strax gríðarlega vinsæll og fullt út úr dyrum. Veitingastaðurinn býður upp morgunverð frá klukkan 7 á morgnanna til 9:30 en opnar svo aftur kl 17 og býður þá upp á mikið úrval af léttvínum og girnilegt val smárétta frameftir kvöldi. Þeir hörðustu geta því byrjað og endað daginn á Port 9.

Gunni Palli eldar sjálfur enda mjög góður kokkur og hefur …
Gunni Palli eldar sjálfur enda mjög góður kokkur og hefur rekið vinsæla veisluþjónustu um árabil.
Port 9
Port 9
Port 9
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert