Guðdómlegur rauðrófuhummus

Gullfallegur rauðrófuhummus stútfullur af góðri næringu.
Gullfallegur rauðrófuhummus stútfullur af góðri næringu. Árni Sæberg/mbl.is

Linda Björk Ingimars­dótt­ir gour­met­grall­ari Mat­ar­vefjar­ins er kom­in í hauststuð og skellti í þenn­an fal­lega humm­us. Hann er mein­holl­ur og mjög bragðgóður og ekki er verra að ís­lensk­ar rauðróf­ur eru í topp­st­andi núna svo þetta er til­val­in leið til að nýta þær.

Ábend­ing: Það er einnig til­valið að setja 1 msk. af rauðróf­usafa eða mauki út í sýrðan rjóma eða jóg­úrt til að fá skær­bleik­an lit og smá víta­míninn­spýt­ingu.

„Rauðróf­ur eru allra meina bót, þær eru til dæm­is stút­full­ar af járni, fólín­sýru, magnesí­um og kalí­um ásamt A-, B6- og C-víta­mín­um,“ seg­ir Linda en hún er mik­ill aðdá­andi humm­us­ar. 

„Á köld­um vetr­ar­dög­um er gott að borða svona orku­bombu og það besta er að hún er líka mjög bragðgóð. Hægt er að nota rauðróf­ur í alls kon­ar upp­skrift­ir og jafn­vel kök­ur. Að gera humm­us er mjög ein­falt, hann er holl­ur og góður sem meðlæti, á brauð, vefj­ur, sem ídýfa eða á hrápitsur í stað hinn­ar klass­ísku pítsusósu. Þessi humm­us er dá­sam­lega létt­ur og bragðgóður. Upp­skrift­in er stór en auðvelt er að helm­inga hana fyr­ir lít­il heim­ili en humm­us má líka vel frysta.“

Guðdómlegur rauðrófuhummus

Vista Prenta

2 litl­ar eða 1 stór rauðrófa
4 - 6 hvít­lauks­geir­ar
2 dós­ir kjúk­linga­baun­ir
1/​4 bolli tahini
2 msk. möndl­u­smjör
safi úr 1/​2 sítr­ónu
1/​3 bolli ólífu­olía
Salt og pip­ar eft­ir smekk
Ferskt dill og furu­hnet­ur til skreyt­ing­ar, saxað

Hitið ofn­inn í 200 gráður.

Setjð rauðróf­urn­ar í álp­app­ír ásamt hvít­laukn­um og 1 msk. af vatni og pakkið vel inn og bakið í  45 - 60 mín­út­ur eða þar til rauðróf­an er mjúk.

Leyfið rauðróf­unni og hvít­laukn­um að kólna.

Setjið kjúk­linga­baun­ir, möndl­u­smjör, sítr­ónusafa í mat­vinnslu­vél og vinnið vel sam­an.

Bætið við baun­irn­ar rauðróf­um og hvít­lauk sem búið er að skræla og skera í bita og látið bland­ast vel sam­an. Saltið og piprið eft­ir smekk.

Hellið ólífu­olí­unni ró­lega sam­an við. Ef ykk­ur finnst humm­us­inn of þykk­ur má setja 1-2 msk. af ís­vatni eða köld­um safa af kjúk­linga­baun­um sam­an við, látið vél­ina vinna humm­us­inn þar til sú áferð sem þið viljið er kom­in.

Setjið humm­us­inn í skál, skreytið og njótið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert