Ísland er á verðlaunapalli í Bocuse d'Or-matreiðslukeppninni sem fram fer í í Lyon í Frakklandi. Bandaríkin sigruðu í keppninni, Norðmenn voru í öðru sæti og Ísland hafnaði í því þriðja. Viktor Örn Andrésson keppti fyrir hönd Íslands og honum til aðstoðar var Hinrik Örn Lárusson og þjálfari þeirra er Sigurður Helgason. Vefsíðan Veitingageirinn greinir frá.
Viktor hefur æft stíft síðustu tvö ár fyrir keppnina sem er ein virtasta matreiðslukeppni í heimi. Morgunblaðið sló á þráðinn til hans fyrir keppnina.
Frétt mbl.is: Markmiðið að koma heim með verðlaun
24 þjóðir komast að hverju sinni og eru haldnar forkeppnir í hverri heimsálfu fyrir sig. Keppendur fá 5 klukkutíma og 35 mínútur til að matreiða réttina sína. Þá þurfa þeir að matreiða á 14 diska fyrir dómarana. Aðalrétturinn er alltaf framreiddur á sérstöku fati en Viktor mun reiða mat sinn fram á fati sem kostar fleiri hundruð þúsund krónur.