Það er líf og fjör í vöruþróunardeild súkkulaðiframleiðenda um þessar mundir og þó nokkrar nýjungar í boði fyrir súkkulaðiþyrstan landann sem lætur sig dreyma um egg af öllum stærðum og gerðum.
Nói Síríus hefur sett á markað saltkaramelluegg og hafa viðtökurnar verið rosalegar enda kunna landsmenn að meta sína saltkarmellu. Góa er líka að koma sterk inn með piparfyllt lakkrísegg og getum við hér á matarvefnum ekki annað en glaðst yfir viðleitni framleiðenda til að uppfylla allar okkar óskir.
Nói Síríus býður jafnframt upp á vegan-egg og má búast við að það gleðji marga enda fjölgar veganistum hratt um þessar mundir.
Það eru því spennandi páskar í vændum svo ekki sé meira sagt.