Systurnar í Systur og makar eru smekkkonur miklar og á samnefndu bloggi þeirra hefur verið hægt að fylgjast með framkvæmdum við sumarbústað þeirra sem þær fjárfestu í árið 2015. Bústaðurinn var hefðbundinn að mörgu leyti og voru þær systur (ásamt mökum) staðráðnar í að gera hann upp. Það var sérstaklega eldhúsið í bústaðnum sem vakið hefur mikla athygli enda sýnir það og sannar hvað hægt er að gera með góðri málningu, smekkvísi og töluverðri þolinmæði.
Systur og makar er rekið er af tveimur systrum, þeim Kötlu Hreiðarsdóttur og Maríu Kristu Hreiðarsdóttur ásamt Berki Jónssyni, eiginmanni Maríu.
Fyrirtækið er einskonar samastaður fyrir hönnunarmerki systranna Volcano Design og Kristu Design undir einum hatti þar sem þau selja eigin hönnun í formi fatnaðar, skarts og heimilisvöru.
Hægt er að fylgjst með systrunum og mökum þeirra á heimasíðu þeirra Systur og makar og á snapchat síðu þeirra: systurogmakar
Umfjöllun þeirra systra um eldhúsbreytingarnar má nálgast hér.